22.september kl. 11:00 opnar fyrir næsta tímabil
Brú stéttarfélag • 15. september 2026
Næsta opnun sumarbústaða

Þann 22. september kl. 11:00 opnar fyrir tímabilið 5. janúar - 2. júní 2027
Bókunarferlið, bókanir fara fram á: Mínum síðum → Valmynd (vinstra megin) → Orlofseignir → Bókunardagatal
💻 Best er að skoða orlofshúsin og ganga frá bókun í tölvu frekar en í síma.
- Félagar í Brú hafa forgang að orlofshúsunum félagsins í 4 vikur.
- Þann 20. október kl. 11:00 verður síðan opnað fyrir bókanir milli allra aðildarfélaga.
- Hægt er að vera með tvær bókanir á þessu tímabili.
- Helgar eru alltaf fastar frá föstudegi til mánudags og því er ekki hægt að láta bókun enda á sunnudegi.
- Hægt er að lengja bókun með því að bæta við dögum fyrir eða eftir helgi.
- Hámarkslengd hverrar bókunar er 7 dagar.
- Vilji félagi bóka lengur en 7 daga samfellt er hægt að hafa beint samband við skrifstofu Brúar.
- Hér gildir reglan fyrstur kemur, fyrstur fær.
- Enginn punktafrádráttur er á þessu tímabili.
- Athugið: Páskavikan er ekki innifalin í þessu tímabili. Hún fer í sérstaka úthlutun sem verður auglýst síðar🐣.




