Aðalfundur Brúar 25.mars kl: 18:00
Brú félag stjórnenda • 7. mars 2026

Aðalfundur Brúar verður haldinn miðvikudaginn 25.mars kl: 18:00

106. aðalfundur Brúar félags stjórnenda verður haldinn miðvikudaginn 25. mars kl. 18:00 í sal Læknafélags Íslands á 4. hæð, Hlíðasmára 8 í Kópavogi.


Við vonumst til að sjá sem flesta félaga á fundinum og hvetjum ykkur til að taka tímann frá. Aðalfundur er góður vettvangur til að taka þátt í starfi félagsins, fylgjast með því sem er fram undan og taka þátt í stjórnarkjöri.


Þeir félagar sem hyggjast mæta eru vinsamlega beðnir um að skrá sig á fundinn með því að ýta á hnappinn ,,Skrá mætingu" neðar á síðunni svo unnt sé að áætla fjölda vegna veitinga.


Dagskrá fundar:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  2. Skýrsla stjórnar kynnt
  3. Reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar, sbr. 9.kafla. 9.1. gr.
  4. Tillaga um að laun stjórnar haldist óbreytt, sbr. 8.kafla. 8.1.3. gr.
  5. Tillaga um að félagsgjald og skipting á milli sjóða haldist óbreytt, sbr. 3.kafla. 3.5. gr.
  6. Tillaga um að dánarbætur haldist óbreyttar, sbr. 3. gr. skipulagsskrá Styrktar- og minningarsjóðs.
  7. Tillaga um laun skoðunarmanna reikninga, sbr. 8.kafla. 8.1.3. gr.
  8. Tillögur um breytingar á lögum félagsins, sbr. 12.kafla. 12.5. gr.
  9. Kosning formanns, ritara, tveggja varamanna stjórnar (einn til tveggja ára og einn til eins árs), tveggja skoðunarmanna reikninga (til tveggja ára) og skoðunarmanns reikninga til vara (til tveggja ára)


Önnur mál:

  1. Kynning frá STF Bjarna Þór Gústafssyni og Ernu Hilmarsdóttur.

Fundargögn:

Lagabreytingartillögur Tillögur stjórnar Ársreikningur 2025

Kosið verður í eftirfarandi embætti:

  • formaður (til tveggja ára)
  • ritari (til tveggja ára)
  • tveir varamenn (einn til tveggja ára og einn til eins árs)
  • tveir skoðunarmenn reikninga (til tveggja ára)
  • skoðunarmaður reikningana til vara (til tveggja ára)


Eftirfarandi stjórnarmenn hafa þegar tilkynnt að þeir hyggjast gefa kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu:

  • Kjartan Friðrik Salómonsson formaður, gefur kost á sér til áframhaldandi setu sem formaður
  • Sigurður Kristinsson ritari, gefur kost á sér til áframhaldandi setu sem ritari


Framboð í embætti þurfa að berast í síðasta lagi 5 dögum fyrir aðalfund eða til og með 20.mars. Tilgreina þarf hvaða embætti sóst er eftir. Framboð eru tilkynnt neðar á síðunni með því að ýta á hnappinn ,,Tilkynna framboð".


13.KAFLI: Bráðabirgðaákvæði

13.1. Við kosningu tveggja varamanna á aðalfundi 25. mars 2026 skal víkja frá ákvæði 7.4. um lengd kjörtímabils að því leyti að: Sá frambjóðandi sem flest atkvæði hlýtur skal kjörinn til tveggja ára. Sá frambjóðandi sem næstflest atkvæði hlýtur skal kjörinn til eins árs. Hljóti frambjóðendur jafnmörg atkvæði, eða séu þeir sjálfkjörnir, skal hlutkesti ráða um lengd kjörtímabils hvors um sig. 13.2. Frá og með aðalfundi 2027 skal kjósa einn varamann til tveggja ára á hverjum aðalfundi. Ákvæði þetta fellur úr gildi að loknum aðalfundi 2027.

Tilkynna framboð Skrá mætingu á aðalfund
Eftir Brú félag stjórnenda 12. mars 2026
Bókunardagsetningar fyrir orlofshús
Eftir Brú félag stjórnenda 12. mars 2026
Niðurstöður úr þjónustukönnun Maskínu
Eftir Brú félag stjórnenda 11. febrúar 2026
Við viljum heyra frá þér!