Maskína sendir þjónustukönnun fyrir Brú
Brú félag stjórnenda • 11. febrúar 2026

Við viljum heyra frá þér!

Þjónustukönnun

Fljótlega mun Maskína senda út þjónustukönnun fyrir hönd Brúar. Áætlaður svartími könnunarinnar er um það bil 5 mínútur og værum við afar þakklát ef sem flestir sæju sér fært að taka þátt.


Niðurstöður könnunarinnar verða nýttar til að styðja við stefnumótun og framtíðarsýn félagsins og leggja grunn að gagnadrifnum ákvörðunum um málefni þess.


Frábærir vinningar í boði.

(Maskína mun draga af handahófi úr innsendum svörum)


Vinningar:

  • 1 x vika að eigin vali sumarið 2026 í orlofshúsi Brúar 🏡 (hvar og hvenær sem er!)
  • 2 x 25.000 kr. Ferðaávísun 🏨 (gildir í gistingu á hótelum um land allt hjá samstarfsaðilum, til dæmis Íslandshótel/Fosshótel, Beryjaya, Sigló Hótel og fl).


Í könnuninni verður spurt út í:

  • þjónustu skrifstofunnar 🛎️
  • styrki í sjúkra- ⚕ og menntasjóð 📚
  • orlofshús og önnur orlofsgæði 🏡
  • viðburði og fl.


Einnig verða opin box þar sem félagar geta komið á framfæri hugmyndum, tillögum og ábendingum.

Hvetjum alla sem hafa hugmyndir að koma þeim áleiðis í gegnum könnunina.


Við framsetningu niðurstaðna verður tryggt að ekki sé hægt að rekja svör til einstakra svarenda og farið verður með öll gögn sem trúnaðarmál.


Eftir Brú félag stjórnenda 27. janúar 2026
Það opnar 9.mars fyrir umsóknir
Eftir Brú félag stjórnenda 16. janúar 2026
Hægt er að koma við á skrifstofunni og ná sér í eintak.
Eftir Brú félag stjórnenda 19. desember 2025
Gleðilega hátíð kæru félagar🎄