Starfsmenntasjóður STF

Vilt þú efla þig í starfi 📈 ?
Starfsmenntasjóður STF er til staðar til að styðja þig í námi og starfsþróun.
Hámarksstyrkur í sjóðinn er 200.000 kr.
- Sjóðurinn greiðir að hámarki 80% af útlögðum kostnaði.
- Hver styrkupphæð sem greidd er út endurnýjast 12 mánuðum síðar.
Hvað er styrkhæft 📚 ?
- Nám
- Námskeið
- Ráðstefnur
- Málþing
- Prófgjöld
- Starfslokanámskeið
- Fræðslu- og kynnisferðir (hámark 150.000 kr.)
- Tómstundanámskeið (hámark 35.000 kr.)
- Ferðakostnaður innanlands (hámark 60.000 kr.)
Verkefni þarf að jafnaði að varða annað hvort starf eða fagsvið félaga eða getað orðið þeim til tekna til að teljast styrkhæft.
(Athugið að samtals er hámarksupphæð 200.000 kr. fyrir alla þessa liði)
Hvernig reiknast styrkurinn 🔢 ?
- Til þess að eiga rétt á fullum styrk þarf að uppfylla ákveðið lágmarkstekjuviðmið sem er 646.255 kr.
- Ef greitt er af lægri launum þá skerðist styrkur hlutfallslega.
- Til þess að geta sótt um þurfa að hafa borist 6 iðgjaldagreiðslur og vera virkur í sjóðnum.
Hvernig sæki ég um 🌐 ?
- Sótt er um inni á Mínum síðum, undir valmynd (vinstra megin) og þar undir styrkir.
- Við umsókn eru sett öll viðeigandi gögn. Mikilvægt er að gild greiðslukvittun fylgi með.
- Umsóknir sem berast fyrir 20. hvers mánaðar eru greiddar út í lok þess mánaðar.
- Hægt er að fylgjast með stöðu umsóknar með því að fara inn á:
- Mínar síður, undir valmynd - saga - styrkjasaga.
Ert þú að fara í dýrara nám💰?
Þegar sótt er um styrk fyrir dýrara námi er hægt að fá styrk fyrirframgreiddan. Athugið að styrkurinn endurnýjast þá tveimur eða þremur árum eftir greiðsludag umsóknar eftir því hvora upphæðina sótt er um:
- Vegna náms þar sem skólagjöld ná 600.000 kr. er hægt að sækja um fyrirframgreiddan styrk til tveggja ára, 400.000 kr. styrk. Styrkurinn endurnýjast þá 2 árum eftir að sótt var um.
- Vegna náms þar sem skólagjöld ná 900.000 kr. er hægt að sækja um fyrirframgreiddan styrk til þriggja ára, 600.000 kr. styrk. Styrkurinn endurnýjast þá 3 árum eftir að sótt var um.
Hvað gerist við starfslok ?
Til að halda fullum rétti til styrkja í Starfsmenntasjóð eftir starfslok þurfa greiðslur að hafa borist sjóðnum reglulega síðustu 10 ár fyrir starfslok.
- Ef greiðslutímabil er styttra skerðast styrkir hlutfallslega fyrir hvert ár sem vantar upp á 10 ár.
Dæmi: Eftir 9 ára greiðslur er hámarksstyrkupphæð 90%. - Þetta gildir einnig um þá félaga sem kjósa að hætta störfum 65. ára, að því gefnu að þeir sinni ekki launuðu starfi og greiði ekki til annars félags.
Stjórnendanám STF og SA
Stjórnendanámið er hagnýtt 100% fjarnám fyrir stjórnendur og millistjórnendur í samstarfi við Símenntun Háskólans á Akureyri.
Námið er kennt í fimm sjálfstæðum lotum og er hverri lotu skipt upp í áfanga:
- Ég - stjórnandinn (12 áfangar)
- Stjórnun mannauðs (12 áfangar)
- Fyrirtækið - skipulag (10 áfangar)
- Fyrirtækið - rekstur (9 áfangar)
- Fyrirtækið í nútíð og framtíð (8 áfangar)
Námið veitir:
- Fagleg og sjálfstæð vinnubrögð
- Aukið sjálfstraust
- Meiri starfsánægju
- Aukin tækifæri á vinnumarkaði
- Engar forkröfur um menntun
- Unnið er með raunveruleg viðfangsefni sem veita nemendum aukna færni í starfi
- Farið er yfir stjórnun, verkstýringu og mannaforráð
- Námsmat tekur tillit til ólíkra þarfa nemenda
- Þátttakendur hafa möguleika á að klára öll námskeiðin á tveimur árum
- Námið er að öllu leyti kennt í fjarnámi
Námið er metið sem ígildi 30 ECTS eininga og gildir sem slíkt inn á Viðskiptafræðideild HA.
- Verð fyrir hverja lotu: 210.000. kr.
- Heildarverð: 1.050.000 kr.
Starfsmenntasjóður veitir allt að 80% styrk fyrir félaga.
Nánar um Stjórnendanámið má lesa hér fyrir neðan.
Reglugerð Starfsmenntasjóðs
Hægt er að lesa nánar um Starfsmenntasjóðinn með því að skoða reglugerð sjóðsins hér fyrir neðan.




