Samantekt frá aðalfundi
Brú félag stjórnenda • 15. apríl 2026

Aðalfundur 2026

Aðalfundur Brúar félags stjórnenda var haldinn miðvikudaginn 25. mars 2026 kl. 18:00 í sal Læknafélagsins að Hlíðasmára 8 í Kópavogi. Fundinn sóttu 36 félagar. Fundur var settur af Kjartani Friðrik Salómonssyni formanni.


Dagskrá:

  • Á fundinum flutti formaður skýrslu stjórnar þar sem farið var yfir starfsemi félagsins á liðnu ári, meðal annars tölfræði, markaðsmál, orlofsmál, viðburði félagsins, virkjun trúnaðarráðs og niðurstöður þjónustukönnunar sem komu vel út. Einnig kom fram að framundan væru endurbætur á Einisfold 1 í Skorradal.
  • Reikningar félagsins voru kynntir af gjaldkera í gegnum fjarfundabúnað. Fram komu ábendingar um framsetningu ársreiknings, meðal annars að fjöldi starfsmanna og fleira. Reikningar félagsins voru samþykktir samhljóða.
  • Samþykkt var að laun stjórnar og félagsgjald haldist óbreytt. Einnig var samþykkt að dánarbætur úr Styrktar- og minningarsjóði haldist óbreyttar, kr. 150.000. Laun skoðunarmanna reikninga voru samþykkt kr. 45.000.
  • Lagabreytingar voru kynntar og afgreiddar lið fyrir lið. Helstu breytingar fólu meðal annars í sér kynhlutlaust orðalag í lögum félagsins, breytingar á ýmsum greinum laga og breytingu á ákvæði um framlagningu og endurskoðun reikninga.

 

Kosning í stjórn:

  • Kjartan Friðrik Salómonsson var sjálfkjörinn formaður til áframhaldandi setu.
  • Sigurður Ragnarsson var endurkjörinn ritari.
  • Eyrún Huld Harðardóttir var kjörin varamaður til tveggja ára og Ástþór Ingvi Ingvason var kjörinn varamaður til eins árs.
  • Elvar Logi Rafnsson og Björn Björnsson voru sjálfkjörnir skoðunarmenn reikninga og Vordís Baldursdóttir bauð sig fram á fundinum sem varaskoðunarmaður reikninga.


Önnur mál:

  • Undir öðrum málum kynntu fulltrúar STF, Bjarni Þór Gústafsson forseti og Erna Hilmarsdóttir framkvæmdastjóri, starfsemi STF og svöruðu spurningum fundarmanna, meðal annars um heilsustyrki og stöðu sjúkrasjóðs.
  • Formaður óskaði eftir heimild fundarins til áframhaldandi viðræðna við önnur aðildarfélög STF um mögulega sameiningu. Fram kom að tilgangurinn væri meðal annars einföldun út á við og að styrkja stöðu félagsins innan STF. Fundurinn samþykkti samhljóða að veita stjórn heimild til áframhaldandi viðræðna.
  • Í umræðum komu einnig fram ábendingar um að skoða könnunarendurskoðun eða fulla endurskoðun reikninga, taka upp rafrænar kosningar til embætta og kanna möguleika á orlofskostum á Austurlandi.


Fundi var slitið kl. 20:54.

Eftir Brú félag stjórnenda 1. júní 2026
Orlofsuppbót - 62.000 kr.
Eftir Brú félag stjórnenda 30. apríl 2026
Starfsmenntasjóður STF
Eftir Brú félag stjórnenda 12. mars 2026
Bókunardagsetningar fyrir orlofshús