Opnunardagsetningar fyrir veturinn 2026-2027
Brú félag stjórnenda • 12. mars 2026

Bókunardagsetningar fyrir orlofshús

Dagsetningar fyrir veturinn 2026-2027


  • 19.maí kl: 11:00 Opnar fyrir bókanir á tímabilinu 27.ágúst - 22.desember 2026. Hér gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær. Á þessu tímabili er hægt að vera með 2 bókanir.
  • 22.september kl: 11:00 Opnar fyrir bókanir á tímabilinu 5.janúar - 2.júní 2027 Hér gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær. Á þessu tímabili er hægt að vera með 2 bókanir.
  • 13.október kl: 11:00 Opnar fyrir bókanir fyrir jóla- og áramótaviku. Hér gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær.


Gagnlegar upplýsingar:

  • Ef félagi er komin með 2 bókanir á tímabili en sér að það er laust með stuttum fyrirvara í bústað er hægt að hafa samband við skrifstofuna.
  • Hámarkslengd bókunar eru 7 dagar, ef viðkomandi vill bóka fleiri daga er hægt að hafa samband við skrifstofuna og athuga málið.
  • Helgarnar eru fastar frá föstudegi til mánudags, það er hægt lengja í helgunum ef vill. Ef viðkomandi er nú þegar búin að bóka helgi en vill bæta við dögum er hægt að hafa samband við skrifstofuna.
  • Á forsíðunni á Mínum síðum birtast upplýsingar ef lausir bústaðir eru í boði á næstunni.
  • Einnig er auglýst á Facebook-síðu Brúar ef bústaðir hafa losnað með stuttum fyrirvara.


Punktainnvinnsla:

🟢 Punktainnvinnsla er 1 punktur fyrir hvern mánuð, 12 punktar fyrir allt árið.

➖ Það er hægt að fara í mínus punkta.

🟢  Punktar eru uppfærðir mánaðarlega.

🟢 Hægt er að sjá punktasöguna inni á Mínum síðum undir: valmynd - saga - punktar.


Punktafrádráttur:

🟢 Sumar-, páska-, jóla- og áramótavika kostar 24 punkta.

🚫Engin punktafrádráttur er á veturnar.



Eftir Brú félag stjórnenda 30. apríl 2026
Starfsmenntasjóður STF
Eftir Brú félag stjórnenda 12. mars 2026
Niðurstöður úr þjónustukönnun Maskínu
Eftir Brú félag stjórnenda 7. mars 2026
Aðalfundur Brúar verður haldinn miðvikudaginn 25.mars kl: 18:00