Efst á baugi

Nýjustu fréttir um viðburði, úthlutanir og tilkynningar.

Eftir Brú félag stjórnenda 10. október 2025
Ævintýri í jólaskógi og Jólagjöf Skruggu
Eftir Brú félag stjórnenda 30. september 2025
Námskeið um lífeyrismál
Eftir Brú félag stjórnenda 19. september 2025
Eftir Brú félag stjórnenda 16. september 2025
Kristinn Ásgeir Gylfason var kosinn meðstjórnandi í stjórn Brúar á aðalfundi félagsins þann 9. apríl sl. Kristinn er lögfræðingur að mennt og á hann ráðgjafafyrirtækið Scaling Legal ehf. sem veitir sprotafyrirtækjum sérsniðna lögfræðiþjónustu. Áður starfaði hann hjá Sidekick Health þar sem hann öðlaðist góða reynslu í lögfræðilegum málefnum og persónuverndarmálum. Að auki hefur hann haldið utan um samningagerð og margt fl. Kristinn er einnig að læra húsasmíði. „Ég bauð mig fram til stjórnarsetu í Brú, fyrst og fremst til að standa vörð um hagsmuni félagsfólks og þá sérstaklega vil ég tala röddu einyrkja og stjórnenda í litlum fyrirtækjum. Ég veit að það hefur gengið vel hjá stjórn Brúar en eins og alls staðar er þarft að taka inn nýja rödd reglulega. Það er hlutverk sem ég er stoltur að taka að mér. Ég vil leggja áherslur á gott samband félagsfólks við stjórn og faglega stjórnarhætti sem einkennast af virku gagnsæi,“ segir Kristinn . Kristinn er frábær viðbót í stjórn Brúar og bjóðum við hann hjartanlega velkominn til okkar og hlökkum til samstarfsins.
Eftir Brú félag stjórnenda 14. ágúst 2025
Mikilvægar dagsetningar vegna úthlutunar á bústöðum yfir jól og áramót 2025
Eftir Brú félag stjórnenda 15. júlí 2025
Skrifstofa Brúar verður lokuð frá 20. júlí til 8. ágúst vegna sumarleyfa. Við opnum aftur mánudaginn 10. ágúst. Ef upp koma vandamál í orlofshúsi skal hringja í umsjónarnúmer sem finna má í leigusamningi og á Félagavef undir eigninni. Fyrir erindi vegna styrkja og kjara- og réttindamála er hægt að hafa samband við skrifstofu STF (lokuð 21.-25. júlí). Við minnum á að hægt er að senda inn styrkumsóknir og bóka orlofshús á Félagavefnum . Brýnum erindum verður svarað í tölvupósti á bfs@bfs.is Gleðilegt sumar! - - - - - - - -  The Brú Office will be closed for summer vacation from July 20 to August 8 . We will reopen on Monday, August 10. If any issues arise at a vacation house , please call the contact number listed in the rental agreement and on the member site under that property. For matters concerning grants and wage rights you can contact the STF office (closed July 21–25). You can still submit grant applications and book vacation houses through the member site . Urgent matters will be answered via email at bfs@bfs.is Have a great summer!
Eftir Brú félag stjórnenda 30. júní 2025
41. þing STF (Sambands stjórnendafélaga) var haldið dagana 2.-3. maí sl. á Natura Berjaya hótelinu í Reykjavík. Þingið er haldið annað hvert ár og skiptast aðildarfélögin á að halda þingið með STF. Í ár vorum við þinghaldarar. Megin áhersla þingsins voru markaðsmál félaganna og að greina hvar tækifærin okkar allra liggja. Fyrir Brú og öll félögin skiptir nýliðun miklu máli og því mikilvægt að við séum sýnileg um land allt. Einnig var skoðað hvernig félögin geti stuðlað að jafnara kynjahlutfalli meðal sinna félaga. Eyrún Huld Harðardóttir, markaðsséfræðingur og varamaður í stjórn Brúar, flutti frábært erindi um markaðsmál og kynnti þær breytingar sem orðið hafa á markaðsmálum Brúar síðan í haust. Einnig fóru allir þingfulltrúar í vinnustofu um markaðssmál undir handleiðslu Eyrúnar. Þökkum henni innilega fyrir alla þá frábæru vinnu sem hún lagði til þingsins. 
Eftir Brú félag stjórnenda 21. maí 2025
Sjúkrasjóður STF styrkir Píeta samtökin
Eftir Brú félag stjórnenda 1. maí 2025

Eftir Brú félag stjórnenda 1. maí 2025
Skrifstofan lokuð 2.maí
Sjá eldri fréttir